Lyklasmíði og lykilkóðar

Lyklasmíði og lykilkóðanir
Síðastliðinn rúman áratug hafa allar bifreiðategundir verið framleiddar með ræsivarnarbúnaði. Ræsivarnarbúnaður virkar þannig að lyklar eru kóðaðir sérstaklega fyrir þá bifreið sem þeir ganga að svo unnt sé að ræsa vélina.
Þannig að ef svo óheppilega vill til að lykill týnist þarf að hafa eftirfarandi í huga.
Kaupa þarf nýtt lykilefni hjá umboðsaðila, það getur farið þannig fram í fyrsta lagi að umboðsaðili pantar frá framleiðanda lykilefni sérstaklega skorið fyrir þá bifreið sem við á, eða í öðru lagi að keypt er lykilefni hjá umboðsaðila og farið með það til lyklasmiðs sem upplýsingar fást um hver eða hverjir eru hjá umboðsaðila. Hafa ber í huga að ef seinni kosturinn er valinn þarf að fá lykilskurðarnúmer hjá umboðsaðila sem fara þarf með ásamt lykilefninu til lyklasmiðsins.
Síðan þegar skorinn lykill fyrir tiltekna bifreið er tilbúinn þarf að kóða hann við ræsivarnarbúnaðinn.
Kóðun getur einungis farið fram hjá löggildum þjónustuaðila fyrir viðkomandi bifreið sem hefur yfir að ráða tölvubúnaði sem hentar við kóðunina.
Ekki er nóg að koma einungis með lykilinn til kóðunar heldur þarf bifreiðin að fylgja með þannig að ef allir lyklar týnast þarf að hafa samband við næsta löggilda þjónustuaðila og í sameiningu er hægt að finna lausn sem hentar.
Ef upp koma spurningar hafið þá samband við næsta þjónustuaðila.