Þjónustuverkstæði

Þjónustuverkstæði



Þjónustuverkstæði Bernhard

Þjónustuverkstæði Bernhard er að Vatnagörðum 26 í Reykjavík.  Verkstæðið er útbúið nýjustu tækjum og verkfærum og vinna þar sérhæfðir bifvélavirkjar sem hafa þjónustað bíla í tugi ára.

Verkstæðið sér um almennar viðgerðir, smurþjónustu og ábyrgðarþjónustu auk þess að vera viðskiptavinum okkar til halds og trausts ef eitthvað bjátar á.  Eingöngu eru notaðar bestu fáanlegu vörur, framleiddar af Honda eða Peugeot, í viðgerðir og þjónustu en olíuefni í samræmi við kröfur framleiðenda eru keypt hjá Olís hf.
Sérþjónusta, sértilboð og vetrarskoðanir eru í boði og auglýst sérstaklega.  Viðskiptavinum þjónustuverkstæðisins býðst að leigja bíl til afnota á mjög vægu verði meðan viðgerð fer fram.  Er það ótvíræður kostur í hröðu nútímaþjóðfélagi.

Tengiliðir verkstæðis:
Pétur Pétursson, þjónustustjóri
Guðbjörn S. Ingason, verkstjóri

 

Sími verkstæðis er: 520-1100
Neyðarsími: 824-1140
Netfang: verkst@bernhard.is

 

 

Þjónustuaðilar Bernhard á landsbyggðinni

 

  Reykjanes Vesturland Norðurland Vestmannaeyjar
Fyrirtæki Nýsprautun Bernhard - Bílver Höldur Bílaverkstæðið Bragginn
Heimilisfang Njarðarbraut 15 Innnesvegi 1 Þórsstíg 2 Flötum 20
Staður 260 Reykjanesbæ 300 Akranes 600 Akureyri 900 Vestmannaeyjar
Sími 421 2999 431 1985 461 6020 481 1535